
AF HVERJU?
Spurning sem við spyrjum oft sem börn.
En alltof sjaldan í rekstri
Við hjálpum þér og þínu fyrirtæki að skoða og skipuleggja verkefni, deildir og ferla.
Ekki vera feimin/n, hafðu samband og fáðu fría heimsókn
Í niðursveiflu líkt og þeirri sem nú ríkir eru fyrirtæki undir auknum þrýstingi að ná meiri árangri með sömu eða færri auðlindum. Með aðkomu utanaðkomandi sérfræðings fá stjórnendur nýja sýn á reksturinn, skýrari forgangsröðun og markvissar aðgerðir sem geta aukið tekjur, dregið úr sóun og skapað varanleg verðmæti.
Akkuru hjálpar íslenskum fyrirtækjum að auka sölu og hagnað, halda betur utanum kostnað og draga saman á réttum stöðum með skýrari ferlum, bættri stjórnun og markvissri framkvæmd
Nýjasta efnið
Fulla ferð og engar bremsur
Ég hélt því fram við góðan vin fyrr í sumar að allir væru hræddari og óöruggari en maður héldi að þeir væru. Hann trúði mér engan veginn, ríku karlarnir ættu ekki svona pening nema af því að þeir hefðu trú á sér. Þetta var fullyrðing sem gekk ekki upp í hans huga, og ég skil…
Hvað get ég gert?
Síðan ég skrifaði hér síðast hefur ýmislegt gerst. Ég hef tekið að mér tvö stærri verkefni, að hluta til sem tilraun eða áskorun á sjálfan mig, til að vita „hvað get ég gert?“. Fyrra verkefnið snéri að því að endurræsa fyrirtæki í góðum rekstri, fyrirtæki sem gekk vel og óx ágætlega, en vildi meðal annars…
Brennum bátana og plöntum trjám
Ég var að hlusta á podcastið hjá Patrick Lencioni og félögum í fríinu og þeir settu í einfaldan búning hluti sem ég er búinn að vera hugsa um núna á Covid tímum.Annars vegar það að ef þú brennir bátinn þá er erfiðara að snúa við og er þar vitnað í þegar landkönnuðurinn Cortés brenndi bátana…
HVAÐA ÞJÓNUSTU VEITUM VIÐ?
- Starfsmannasamtöl
- Rekstrarráðgjöf
- Sáttasemjari / hlutlaus milliliður
- Framkomuráðgjöf (ertu með fyrirlestur á Zoom?)
- Ræðukennsla – Reynsla af rekstri og framkoma/leiklist
En fyrst og fremst skoðum við með þér hvort að réttu ferlarnir séu virkir til að hámarka nýtingu tíma, fjármuna og starfsfólks þíns fyrirtækis.
Þjónustuloforð
Við sjáum til þess að þú græðir eða sparir meira en við rukkum

Við erum enn að vinna í síðunni, þetta gerist hægt og rólega.
Alltaf velkomið að senda póst á gunnar@akkuru.is