Ég hélt því fram við góðan vin fyrr í sumar að allir væru hræddari og óöruggari en maður héldi að þeir væru. Hann trúði mér engan veginn, ríku karlarnir ættu ekki svona pening nema af því að þeir hefðu trú á sér. Þetta var fullyrðing sem gekk ekki upp í hans huga, og ég skil það svosem, frá hans sjónarhorni.
En skoðum aðeins betur þessa „ríku kalla“. Flestir af þeim eiga það sameiginlegt að hafa farið á hausinn, kannski ekki persónunlega, en eitt eða fleiri fyrirtæki sem þeir hafa verið í forsvari fyrir og sumir þeirra vissulega farið persónulega á hausinn, sumir oftar en einu sinni.
Þannig hvað er til í þessari fullyrðingu? Við getum allavega stutt hana með því að þetta eru menn sem reyndu oftar en einu sinni, og oft reyndu þeir við hugmynd sem aðrir sögðu að gæti ekki virkað, en þeir reyndu samt. Sumt virkaði en annað ekki, niðurstaðan er hins vegar sú að þeir héldu áfram að reyna þangð til þeir fundu hugmyndir sem tókust.
Ýmislegt hefur verið rannsakað í þessum fræðum og niðurstaðan er ekki að þetta fólk sé gáfaðra en við hin, óhræddara en við hin eða betra í rekstri en við hin. Niðurstaðan er að þetta fólk reyndi við fleiri hugmyndir en við hin. Það tók fyrsta þrepið í stiganum án þess að hafa hugmynd hversu stór stiginn væri eða hvert hann lægi. Það skellti bílnum í gír án þess að vita endilega hvort á honum væru einhverjar bremsur. Og á einhverju tímapunkti sögðu sum þeirra „ég hef engu að tapa nema peningum“ og brunuðu áfram án þess að hlusta á nei-segjendur.
Hvað ef Albert Einstein hefði hlustað á fólk sem sagði honum að hann fyrst hann ætti í erfiðleikum með lestur þá yrði aldrei neitt úr honum?
Hvað ef Nikola Tesla hefði hætt að hanna og dreyma þegar hann lenti í vandræðum með fjármögnun?
Hvað ef Stephen Hawking hefði hætt að reyna þegar fötlunin tók yfir og hann missti málið?
Hvað ef frumkvöðlar mannkynssögunnar hefðu látið óttann við höfnun sigra?
Hversu langt værum við komin ef fleiri frumkvöðlar hefðu tekið sénsinn?
Þótt ég hafi lengi haft óbeit á þessari setningu, þá er stundum eina leiðin áfram að setja á fulla ferð og engar bremsur. Versta sem gerist er að okkur mistekst og þá erum við allavega búin að læra hvað við getum ekki, allavega ekki núna, en kannski seinna.